Viðskipti innlent

Taka sér einn mánuð til viðbótar til að meta hvort álverinu verði lokað
Rio Tinto, eigandi álversins í Straumsvík, nær ekki að ljúka endurskoðun á starfsemi ISAL fyrir þessi mánaðamót, eins og fyrirtækið hafði stefnt að, og vonast nú eftir niðurstöðu fyrir lok júlímánaðar. Einn af möguleikunum sem eru til skoðunar er að loka álverinu.

Átta missa vinnuna hjá Símanum
Átta starfsmönnum hugbúnaðarþróunardeildar Símans var sagt upp störfum nú fyrir helgi og deildin lögð niður.

Magnús nýr hafnarstjóri Faxaflóahafna
Stjórn Faxaflóahafna hefur samþykkt að ráða Magnús Þór Ásmundsson í starf hafnarstjóra. Hann hefur verið stöðunni þann 5. ágúst næstkomandi.

Margrét ráðin til Fiskistofu
Margrét Einarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri þróunar- og gæðamála hjá Fiskistofu.

Vonarstjarna til Viðskiptaráðs
Steinar Þór Ólafsson, sem starfað hefur sem markaðsstjóri Skeljungs, tekur við stöðu samskiptafulltrúa Viðskiptaráðs í ágústlok.

Telur Icelandair ekki lifa af krísuna án ríkisaðstoðar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, kveðst bjartsýnn á að það takist að bjarga félaginu enda sé ekkert vit í öðru. Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri, telur það ekki gerast án ríkisaðstoðar.

Hagar töpuðu 96 milljónum á Covid-lituðum ársfjórðungi
Hagar töpuðu 98 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins

Hvalur hf kaupir helming hlutafjár í Íslenska gámafélaginu
Jón Þórir Frantzson og Ólafur Thordersen starfa áfram sem forstjóri og aðstoðarforstjóri félagsins.

Um 6.700 hafa nýtt sér ferðagjöfina
Alls hafa 6.698 manns nýtt sér ferðagjöf stjórnvalda sem varð aðgengileg landsmönnum fyrir um tíu dögum.

Ólöf fyrsti menningarfulltrúi Garðabæjar
Ólöf Breiðfjörð hefur hafið störf sem menningarfulltrúi Garðabæjar.

Fresta hlutafjárútboði fram í ágúst
Icelandair segist hafa náð góðum árangri í viðræðum við marga af helstu hagaðilum félagsins, en samkomulag við þá er forsenda þess að félagið geti hafið hlutafjárútboð.

Stjórnendur enn í viðræðum fyrir hlutafjárútboð
Samningur við stéttarfélög, lánadrottna, íslenska ríkið og Boeing eru enn forsenda þess að unnt sé að ráðast í hlutafjárútboð hjá Icelandair.

Íslenskur spurningaleikur í fyrsta sæti App Store í Bandaríkjunum
Leikurinn Trivia Royale, sem gefinn er út af íslenska tæknifyrirtækinu Teatime fyrir viku síðan hefur farið sigurför um heiminn. Leikurinn er nú í fyrsta sæti á lista App-store yfir mest sóttu leiki í Bandaríkjunum.

Lárus Welding dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri og formaður áhættunefndar Glitnis, var í dag dæmdur í Landsrétti í fimm ára skilorðsbundið fangelsi vegna Stím-málsins svokallaða.

Gray Line óskar eftir greiðsluskjóli
Rekstraraðili Gray Line á Íslandi, ferðaþjónustufyrirtækið Allrahanda GL ehf, hefur óskað eftir greiðsluskjóli þar til að ferðamenn fara að láta sjá sig aftur.

Bónus oftast með lægsta verðið
Hæsta verðið á matvöru er í flestum tilvikum að finna í Krambúðinni samkvæmt nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ en verð Krambúðarinnar var það hæsta í 51 af 121 tilviki sem skoðað var.

Akstursþjónusta fatlaðs fólks verður Pant akstur
Breytingar verða brátt gerðar á Akstursþjónustu fatlaðs fólks sem hefur verið undir merkjum Strætó undanfarin ár. Frá og með 1. júlí verður þjónustan aðskilin starfsemi Strætó og verður undir nýju nafni, útliti og skipulagi.

Samningurinn kynntur félagsmönnum FFÍ
Félagsfundur Flugfreyjufélags Íslands hófst nú klukkan tíu á Hilton hótel þar sem farið er yfir nýjan kjarasamning félagsins og Icelandair sem undirritaður var í gær.

Útlit fyrir mesta samdrátt á lýðveldistímanum
Útlit er fyrir mesta samdrátt í vergri landsframleiðslu á lýðveldistímanum samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands sem gefin var út í dag.

Krefur Sorpu um 167 milljónir vegna uppsagnarinnar
Björn H. Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sorpu, hefur krafið félagið um 167 milljónir króna vegna uppsagnar sinnar fyrr á árinu.

Stjórnvöld fylgjast náið með stöðu Icelandair
Stjórnvöld fylgjast náið með framvindu hlutafjárútboðs Icelandair og óformleg vinna er í gangi innan stjórnarráðsins við að meta til hvaða ráðstafana þurfi að grípa gangi það ekki eftir.

Kristjón Kormákur hættir sem ritstjóri
Kristjón Kormákur Guðjónsson hefur látið af störfum sem ritstjóri vefs Fréttablaðsins.

„Verulegur skortur“ á formfestu og utanumhaldi
Verulegur skortur var á formfestu við ákvarðanatöku og utanumhald með verkefnum innan Upphafs fasteignafélags, sem er að fullu í eigu fjárfestingasjóðsins Gamma: Novus.

Framlengja samning um lágmarksflug til Boston
Samningurinn kveður á um að flogið verði minnst tvisvar í viku til Boston á tímabilinu.

Undirrituðu samninga um stuðningslán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Seðlabankinn hefur undirritað við samninga við fjóra banka um veitingu stuðningslána til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Segja niðurgreitt sumarnám í háskólum bitna hart á einkareknum fræðslufyrirtækjum
Félag atvinnurekenda hefur sent menntamálaráðherra erindi vegna útfærslu á stuðningi stjórnvalda við sumarnám sem viðbrögð við áhrifum kórónuveirunnar.

Byrja að fljúga Íslendingum til Alicante og Tenerife í júlí
Beint áætlunarflug frá Íslandi til Alicante og Tenerife á Spáni hefst á ný í júlí.

Nýr markaður opnast fyrir íslenskar vörur með siglingum til Grænlands
Straumhvörf í siglingum milli Íslands og Grænlands opna nýjan markað fyrir íslenskar framleiðsluvörur, þar á meðal fersk matvæli eins og grænmeti. Eimskipsmenn segja áhugann á Grænlandi hafa komið á óvart.

Leggja til matarvagn í anda ísbílsins til að sporna við matarsóun
Starfshópur um aðgerðir gegn matarsóun setur fram 24 aðgerðir til að draga úr matarsóun um helming fyrir árið 2030 í nýrri skýrslu

Um þúsund hafa nýtt sér ferðagjöfina
Í heildina hafa 19.980 manns nú sótt sér ferðagjöfina og 512 fyrirtæki skráð sig til leiks.