

Greiningardeild Landsbankans spáir því að hagvöxtur verði 1,4 prósent í ár og 2,1 prósent á næsta ári. Þá spáir bankinn að verðbólga muni halda áfram að hjaðna til ársins 2027. Hagkerfið hefur kólnað eftir kröftugt vaxtarskeið fyrstu árin eftir Covid-faraldurinn og telur bakinn að það fari nú hægt af stað á ný.
Gengi hlutabréfa í Kauphöllinni hélt áfram að lækka þegar markaðir opnuðu í morgun. Mest hafði gengi bréfa í Alvotech lækkað, um tæp átta prósent. Velta með bréf hefur þó verið mjög lítil.
Helgi Skúli Friðriksson, Hrefna Marín Gunnarsdóttir, Þorgeir Eyfjörð Sigurðsson og Stefán Már Kjartansson hafa öll verið ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi netöryggisfyrirtækisins Varist.
Netöryggisfyrirtækið Keystrike hefur ráðið Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttir sem yfirmann sölu, markaðsmála og viðskiptaþróunar fyrir Evrópumarkað.
Steinþór Helgi Arnsteinsson og Ásgeir Guðmundsson, sem eiga skemmtistaðinn Röntgen og veitingastaðinn Skreið í Reykjavík, munu taka við rekstri pílustaðarins Bullseye, sem er staðsett í gamla Austurbæjarbíói.
Arctic Adventures hefur fest kaup á öllu hlutafé í Happy Campers. Frá þessu er greint í tilkynningu, en Happy Campers, sem var stofnað árið 2009, hefur starfrækt húsbílaleigu hér á landi, en velta félagsins mun hafa verið um einn milljarður á síðasta ári.
Markaðir heims hafa ekki tekið tollaálögum Donald Trump Bandaríkjaforseta vel og héldu lækkanir síðustu daga áfram við opnun í nótt markaða í Asíu, um leið og enn meiri tollahækkanir tóku gildi.
Refsitollar Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem hann setti á um sextíu ríki sem hann vill meina að hafi misnotað aðstöðu sína í viðskiptum gagnvart Bandaríkjunum í áraraðir tóku gildi í nótt.
„Það sem kemur mest á óvart er að stjórnendur eru ekki að nota gervigreind meira en starfsfólk. Það gildir bæði þegar spurt er um gervigreind og spunagreind. Rúmlega fimmtungur starfandi fólks segist hafa notað spunagreind oft á síðustu þremur mánuðum til að leysa vinnutengd verkefni, karlar í meira mæli en konur og ung fólk meira en eldra,“ segir Tómas Bjarnason, sviðsstjóri stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafar Gallup.
Play hefur náð samkomulagi um rekstur fjögurra véla úr flota flugfélagsins til ársloka 2027 fyrir erlendan flugrekanda með svonefndri ACMI leigu. Flugreksturinn mun fara fram í gegnum Play Europe, dótturfélag Fly Play hf., sem er með flugrekstrarleyfi á Möltu. Til þess að anna eftirspurn yfir sumarmánuðina verður ein flugvél tekin á leigu.
Jón Bjarki Bentsson, yfirhagfræðingur Íslandsbanka, segir ró vera að færast yfir í hlutabréfaviðskiptum Kauphallar Íslands, allavega í bili. „Auðvitað geta alltaf komið vendingar á næstu dögum sem geta skotið mörkuðum skelk í bringu en í bili er þróunin þannig að óvissan er að minnka og yfirvegun aftur orðin ráðandi.
Uppfærður fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu var undirritaður í Kænugarði í dag. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd.
Verð á Freyju páskaeggjum hækkar um 17 prósent milli ára í Bónus og Krónunni, mun meira en páskaegg Góu, sem hækka 13 prósent, og Nóa Síríus, sem hækka um 9 prósent. Þau eru einnig dýrari en páskaegg Góu og Nóa í kílóverðssamanburði verðlagseftirlits ASÍ.
Truflanir sem urðu á aðgerðum í netbönkum og á virkni rafrænna skilríkja í morgun eru nú sagðar yfirstaðnar. Enn gætu þó orðið smávægilegar truflanir á meðan unnið er úr bilun sem varð í búnaði Reiknistofu bankanna.
Arnar Hólm Einarsson hefur tekið við stöðu forstöðumanns fyrirtækjasviðs hjá Ormsson.
Takmörkuð virkni hefur verið í netbönkum viðskiptabankanna í morgun sem rakið er til bilunar í búnaði hjá Reiknistofu bankanna. Einnig hefur virkni rafrænna skilríkja verið takmörkuð en Auðkennisappið hefur virkað.
Rúmlega 200 konur komu saman til að fræðast og efla tengsl kvenna í orkugeiranum á fyrstu ráðstefnu samtakanna Konur í orkumálum. Ráðstefnan er sú fyrsta sem samtökin halda og var haldin í tilefni af Kvennaárinu.
Eftir þriggja daga samfelldar lækkanir á mörkuðum í Asíu og Evrópu var heldur bjartara yfir við opnun þeirra í nótt og í morgun.
Ríflega 44 prósent eru hlynnt því að Ísland gangi í Evrópusambandið en hátt í 36 prósent andvíg. Það kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Þar kemur einnig fram að það sé svipað hlutfall og fyrir þremur árum þegar stuðningur hafði verið að aukast við inngöngu.
Fjórir dagar eru síðan Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, setti tollgjöld á innflutningsvörur til Bandaríkjanna og hafa markaðir brugðist harkalega við. Hagfræðingur gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur áform um að leggja 25 prósent toll á valdar vörur frá Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í skjali sem Reuters hefur undir höndum.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hótað því að leggja 50 prósenta viðbótartoll á innflutning frá Kína, nema kínversk stjórnvöld dragi til baka mótaðgerðir sem þau kynntu í síðustu viku.
Brimgarðar ehf., sem eru í eigu systkinanna sem kennd eru við Mata, eiga nú tuttugu prósenta hlut í Eik fasteignafélagi. Félagið keypti hluti fyrir alls 238 milljónir króna á föstudag. Systkinin eiga í gegnum önnur félög önnur 13,6 prósent í Eik.
Rima apótek er ódýrasta apótekið í nýjum samanburði verðlagseftirlits ASÍ. Til skoðunar voru aðrar vörur en lyf, þær vörur sem finna má frammi í versluninni. Borgar apótek og Lyfjabúrið höfnuðu þátttöku, en á grundvelli þeirra gagna sem þar var aflað eru þau annað og þriðja dýrasta apótek landsins. Dæmi eru um að vörur kosti sex sinnum meira í apóteki en í stóru matvöruverslununum.
Hlutabréfagreinandi segir ljóst að verðlækkanir á hlutabréfum hér á landi megi rekja til þess að fjárfestar leitast nú við að flýja áhættu og selja hlutabréf sem bera mikla áhættu. Lítil rök séu á bak við lækkanir, til að mynda á íslenskum arðgreiðslufélögum sem enga tengingu hafa við Bandaríkjamarkað.
Vöruviðskipti voru óhagstæð um 38,6 milljarða í mars sem er nokkuð verri niðurstaða en í sama mánuði fyrir ári síðan. Þetta segja bráðabirgðatölur Hagstofunnar. Þá voru vöruviðskiptin óhagstæð um 29,1 milljarð króna.
Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða eftirstöðvar kaupverðs Apple-úrs, sem hann keypti á raðgreiðslum af Símanum aðfaranótt fimmtudags í desember árið 2023. Maðurinn kvaðst ekkert kannast við að hafa keypt úrið og hafa greitt af láninu fyrir misskilning. Maðurinn situr uppi með rúma milljón króna í málskostnað.
Neytendastofa hefur sektað Sif Verslun ehf, rekstraraðila netverslunarinnar sifverslun.is, um 100 þúsund króna vegna rangra fullyrðinga um virkni svokallaðra NatPat-plástra sem félagið selur.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um 5,69 prósent það sem af er degi. Alvotech leiðir lækkanir en gengi hlutabréfa í félaginu hefur lækkað um 12,28 prósent.
Icelandair flutti metfjölda farþega í mars eða 312 þúsund, fimm prósent fleiri en á sama tíma í fyrra en flugframboð jókst að sama skapi um fimm prósent.