Sumartilboð í Hans Petersen 16. júní 2004 00:01
Nú hafa verslanir Hans Petersen í Kringlunni og á Laugavegi 178 tekið í notkun tvær gerðir af nýjum stafrænum framköllunarvélum. Vélarnar eru af gerðinni Noritsu en Noritsu er einn helsti framleiðandi framköllunarvéla í heiminum í dag. Með þessum vélum er nú hægt að bjóða hraðari afgreiðslu á stafrænum myndum og gæðin aukast einnig talsvert. Viðskiptavinir Kringlunnar, Smáralindar og Laugavegs 178 geta nú valið myndir sem þeir vilja láta prenta og sótt aftur innan klukkustundar. Margir möguleikar eru á nýjum vélum og er til dæmis hægt að fá stækkanir allt að 30 sinnum 90 sentimetra. Þá er hægt að setja skyggnur og svart/hvítar filmur á ljósmyndapappír og sjálfvirkar rispu- og ryklagfæringar. Einnig er hægt að skanna filmur yfir á geisladiska með þessari nýju tækni. Nú standa yfir sumartilboð á framköllun í verslunum Hans Petersen í tilefni þessa. Ef allar myndir eru teknar af geisladiski eða minniskorti er myndin á 49 krónur stykkið. Einnig er hægt að fá helmingi stærri myndir í framköllun fyrir 299 krónur aukalega. Svo er hægt að fá myndirnar á geisladisk þegar framkallað er fyrir 299 krónur aukalega og albúm með framköllun á 299 krónur aukalega.
Tilboð Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira