Menning

Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tómas Guðbjartsson og Ármann Reynisson létu sig ekki vanta á sýningaropnun á Listasafni Íslands síðastliðinn föstudag.
Tómas Guðbjartsson og Ármann Reynisson létu sig ekki vanta á sýningaropnun á Listasafni Íslands síðastliðinn föstudag. Elísa B. Guðmundsdóttir

Fjöldi fólks lagði leið sína á Listasafn Íslands síðastliðið föstudagskvöld þar sem menningarvitar, listamenn og unnendur komu saman að taka púlsinn á nýjustu sýningum safnsins. Þar mætast Sigurður Guðjónsson og Kjarval með ólík verk sem taka yfir safnið.

Það var líf og fjör á þessari tvöföldu sýningaropnun. Sigurður Guðjónsson sýnir Hulu, seiðmagnað myndbandsverk sem er tekið í einni samfelldri, sextíu mínútna langri töku. Verkið fangar í mynd og hljóði leik vindsins um svarta sanda Skeiðarársands.

Sýningin Kjarval á Austurlandi varpar ljósi á náin tengsl Jóhannesar S. Kjarvals við Austurland. Sýndar eru landslagsmyndir, mannamyndir og fantasíur og spanna verkin tímabilið frá 1914 til 1961, olíumálverk, vatnslitamyndir, grafíkverk og túskteikningar.

Meðal gesta á opnuninni voru Tómas Guðbjartsson, jafnan þekktur sem Lækna-Tómas, Ármann Reynisson, Dagbjört Hákonardóttir þingmaður Samfylkingarinnar og listakonurnar og kanónurnar Ásta Fanney Sigurðardóttir, Kristín Gunnlaugsdóttir og Rúrí. Hér má sjá vel valdar myndir af skemmtilegum augnablikum sem Elísa B. Guðmundsdóttir greip:

Logi Leó Gunnarsson, Una Björg Magnúsdóttir og Steinunn Harðardóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Skál!Elísa B. Guðmundsdóttir
Greipur Gíslason á góðu spjalli.Elísa B. Guðmundsdóttir
Listakonan Kristín Gunnlaugsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Gestir mættu prúðbúnir í góðum gír.Elísa B. Guðmundsdóttir
Hólmar Hólm og Anna Jóhannsdóttir, sýningarstjóri Kjarval á Austurlandi.Elísa B. Guðmundsdóttir
Sigurður Guðjónsson listamaður verksins Hula og Jóhannes Dagsson.Elísa B. Guðmundsdóttir
Ásta Fanney Sigurðardóttir og Hólmar Hólm slá á létta strengi.Elísa B. Guðmundsdóttir
Erling Klingenberg.Elísa B. Guðmundsdóttir
Ólöf Kristín Sigurðardóttir og Sigurþór Heimisson.Elísa B. Guðmundsdóttir
Hulda Hjartardóttir umkringd góðu fólki.Elísa B. Guðmundsdóttir
Ingibjörg Jóhannsdóttir og Kristján Steingrímur Jónsson áttu skemmtilegt spjall.Elísa B. Guðmundsdóttir
Dagbjört Hákonardóttir mætti í skemmtilega mynstruðum jakka.Elísa B. Guðmundsdóttir
Jóhannes Dagsson í stuði.Elísa B. Guðmundsdóttir
Meðal verka sýningarinnar Kjarval á Austurlandi. Elísa B. Guðmundsdóttir
Kiddi ljósmyndari, Ófeigur Sigurðsson og Sigurður Guðjónsson. Elísa B. Guðmundsdóttir
Arna Gerður Bang og Ásdís Spanó.Elísa B. Guðmundsdóttir
Elín Elísabet Einarsdóttir og Rúrí.Elísa B. Guðmundsdóttir
Eggert Pétursson.Elísa B. Guðmundsdóttir
Ásta Fanney Sigurðardóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Hanna Dóra Sturludóttir, Anna Margrét Guðmundsdóttir og Ingibjörg Hannesdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Árni Blandon Einarsson og Þóra Karítas Árnadóttir, leikkona, skáld og eiginkona Sigurðar listamanns.Elísa B. Guðmundsdóttir
Gestir virtu verkin fyrir sér.Elísa B. Guðmundsdóttir
Margt var um manninn á opnun.Elísa B. Guðmundsdóttir
Stephan Marquardt og Pari Stave, sýningarstjóri Hulu.Elísa B. Guðmundsdóttir
Kristín Karólína Helgadóttir ræddi við góða gesti.Elísa B. Guðmundsdóttir
Unnur Leifsdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Diljá Þorvaldsdóttir og Sadie Cook.Elísa B. Guðmundsdóttir
Anna Jóhannsdóttir sýningarstjóri Kjarval á Austurlandi flutti tölu.Elísa B. Guðmundsdóttir
Bræðurnir Bjartur Elí og Alvin Hugi Ragnarssynir. Elísa B. Guðmundsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.