
Af hverju sigraði Bush?
Veruleikinn vestanhafs var allt annar. Það sýna úrslit kosninganna.
Bush var endurkjörinn forseti með milljón fleiri atkvæðum en Kerry. Enginn Bandaríkjaforseti fyrr og síður hefur fengið jafn mörg atkvæði. Í skilningi lýðræðis er umboð hans afdráttarlausara og skýrara en nokkurs fyrirrennara hans.
Flokkur Bush, Repúblikanar, náði meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings, öldungadeildinni og fulltrúadeildinni. Stuðningur við flokkinn jókst verulega um land allt.
Mál sem Repúblikanar báru fyrir brjósti, svo sem andstaða við hjónabönd samkynhneigðra, fengu meðbyr alls staðar þar sem um þau var kosið. Tíu ríki spurðu kjósendur hvort þeir vildu samþykkja að samkynhneigðir stofnuðu til hjónabands. Alls staðar var svar mikils meirihluta neitandi. Kosningarnar fóru ekki aðeins fram í íhaldssömum "sveitahéruðum" miðríkjanna heldur í ríki eins og Ohio þar sem "nútímaleg borgarmenning" er ríkjandi. Rétt er að hafa í huga í þessu sambandi að í niðurstöðunum felst ekki endilega andúð eða fordómar gagnvart samkynhneigð sem slíkri eða sambúð homma og lesbía heldur fyrst og fremst stuðningur við hjónabandið sem kristilega stofnun sem rúmar aðeins karl og konu.
Sú skoðun meirihluta Evrópubúa að heimurinn yrði ótryggari ef Bush yrði endurkjörinn fékk ekki hljómgrunn meðal Bandaríkjamanna. Hin mikla kjörsókn, sem fjölmiðlar töldu í fyrstu merki um að nú yrði Íraksstefnunni hafnað með eftirminnilegum hætti, reyndist stuðningsyfirlýsing við hryðjuverkastríð forsetans og viðleitnina hans til að koma á lýðræði í Miðausturlöndum með róttækum aðgerðum eins og innrásinni í Írak.
Og í efnahagsmálum er ekki annað að sjá en kjósendur hafi verið sáttir við hagvöxtinn á kjörtímabili Bush en hann hefur verið um 3,7% á ári. Atvinnustefnu Kerrys, sem m.a. fól í sér höft á útflutning starfa og ýmiss konar hömlur á viðskiptalífið, var hafnað.
George W. Bush sigraði í forsetakosningunum vegna þess að stefna hans og hugmyndir átti meiri hljómgrunn meðal bandarísku þjóðarinnar en stefna og hugmyndir Johns Kerry. Það var ekkert kosningasvindl, engar brellur, ekkert samsæri; svona eru Bandaríkin árið 2004.
Bent hefur verið á að sá stuðningur sem Bush fékk í kosningunum hefði ekki þurft að koma á óvart ef fjölmiðlar og álitsgjafar þeirra hefðu sett sig inn í raunverulega þróun bandarísks þjóðfélags undanfarinn áratug eða svo. Allt frá upphafi tíunda áratugarins hafa kjósendur verið að greiða atkvæði "með fótunum" eins og stundum er sagt; þeir hafa verið að flytjast í stórum hópum úr frjálslyndu ríkjunum þar sem demókratar hafa ráðið lögum og lofum og til ríkja þar sem íhaldssamari gildi eru í heiðri höfð. Þessi ríki leggja áherslu á lága skatta og takmörkuð ríkisumsvif og þar svífa yfir vötnum hefðbundin, "gamaldags" siðferðisviðmið og kristin trúarviðhorf. Flutningur kjósenda hefur síðan leitt til þess að kjörmönnum þessara ríkja hefur fjölgað og þar með hefur aukist vægi þeirra í forsetakosningum.
Það hefur vakið athygli margra í Evrópu að kannanir sýna að Bandaríkjamenn eru kirkjurækin þjóð. Það þykir fréttnæmt á Íslandi og víðar í Evrópu - og jafnvel sönnun um trúarlegt ofstæki - að stór hluti fólks vestra sæki kirkju einu sinni í viku. En getur ekki verið að undrun okkar og hneykslun í þessu efni segi meira um okkur en Bandaríkjamenn? Hvað ætli til dæmis herra Karli Sigurbjörnssyni biskupi okkar þyki um kirkjusókinina vestanhafs? Skyldi hann vera sár, gramur og hneykslaður? Ætli það!
Athyglisvert er að margir þeirra sem komast í uppnám yfir kirkjusókn Johns og Mary vestanhafs eru áhyggjufullir - jafnvel sárir - yfir fordómum Vesturlandabúa gagnvart trúarlífi í ríkjum múslima. Þetta fólk talar um nauðsyn þess að skilja Íslam; átta sig á framandi menningarheimi og viðurkenna að hægt sé að sjá hlutina öðruvísi en við erum alin upp við. En þegar Bandaríkin eiga í hlut virðist þetta sjónarhorn gleymast.
Sennilega er fátt þýðingarmeira fyrir framtíðarsamskipti Evrópu og Bandaríkjanna en að við lærum að skilja og átta okkur á hvað er raunverulega að gerast vestanhafs. Gætum þess að láta ekki óskhyggju álitsgjafanna - virðingarverð eins og hún getur verið - blinda okkur sýn. Reynum að átta okkur á því hvers vegna Bandaríkjamenn hugsa eins og þeir gera. Við kunnum að vera ósammála - og það jafnvel mjög - þeim viðhorfum sem kosningarnar sýndu að uppi eru meðal hins almenna Bandaríkjamanns en við ættum ekki að halda áfram að afgreiða þau sem jaðarhugmyndir oftækisfulls minnihluta, enda segja staðreyndirnar annað.
gm@frettabladid.is
Skoðun

Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið
Arnar Laxdal skrifar

Vönduð vinnubrögð - alltaf!
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna
Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar

Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið
Gína Júlía Waltersdóttir skrifar

Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng
Katrín Sigurðardóttir skrifar

Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið!
Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar

Linsa Lífsins
Matthildur Björnsdóttir skrifar

„Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu?
Viðar Halldórsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Netöryggi til framtíðar
Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar

Aftur á byrjunarreit
Hörður Arnarson skrifar

Norðurlandamet í fúski!
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám
Matthías Arngrímsson skrifar

Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja
Helen Ólafsdóttir skrifar

Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð!
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Hvert er markmið fulltrúalýðræðis?
Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar

Ég vona að þú gleymir mér ekki
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu?
Grétar Birgisson skrifar

Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það?
Davíð Bergmann skrifar

Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans
Vésteinn Ólason skrifar

Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska?
Júlíus Valsson skrifar

Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna
Jón Þór Ólafsson skrifar

Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag
Davíð Aron Routley skrifar

Dæmt um efni, Hörður
Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda
Matthías Arngrímsson skrifar

Sóvésk sápuópera
Franklín Ernir Kristjánsson skrifar

Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum?
Anton Guðmundsson skrifar

Dæmir sig sjálft
Jón Pétur Zimsen skrifar

Mega blaðamenn ljúga?
Páll Steingrímsson skrifar