Veittu fjögurra milljóna styrk 24. desember 2004 00:01
Finnur Árnason framkvæmdastjóri Hagkaupa og Ingibjörg Pálmadóttir fyrrverandi ráðherra og framkvæmdastjóri Velferðasjóðs barna afhentu í vikunni Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstofnun Kirkjunnar styrk að upphæð 4 milljónir króna til kaupa á jólagjöfum fyrir börn og unglinga. Með þessum styrk vilja Hagkaup og Velferðarsjóður barna leggja sitt af mörkum til þess mikla góðgerðastarfs sem Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstofnun kirkjunnar standa að. Ingibjörg Pálmadóttir hefur verið framkvæmdastjóri Velferðarsjóðs barna undangengin tvö ár en sjóðurinn er samstarfsverkefni Íslenskrar erfðagreiningar og heilbrigðisráðuneytisins. Á síðastliðnum fimm árum hefur sjóðurinn varið um 300 milljónum til velferðarmála barna. Þetta eru önnur jólin í röð sem Hagkaup leggja til styrk til Mæðrastyrksnefndar en þau sinna einnig ýmsum öðrum góðgerðarmálum.
Innlent Jól Menning Mest lesið Er svo mikill krakki í mér Jólin Það heyrast jólabjöllur Jól Síðustu skiladagar Póstsins Jól Erfið leiðin að jólaskónum Jól Á Betlehemsvöllum Jól Spáð er hvítum jólum fyrir norðan og vestan Jól Fiskur er hátíðarmatur á Ítalíu Jól Sósan má ekki klikka Jól Jólakompumarkaður undir stúku Jól Borgardætur - Þorláksmessa Jól