Gleðja útlendinga 24. desember 2004 00:01 "
Ég var með Dani í heimsókn og fór um borgina og sýndi þeim jólaljósin. Þeir urðu orðlausir þegar þeir sáu allt skrautið hjá Sigtryggi," segir Guðný Ólafsdóttir, starfsmaður Samskipa, um jólaljósin sem lýsa upp hús og garð Sigtryggs Helgasonar í Hlyngerði 12 í Reykjavík. Sjálfri finnst Guðnýju talsvert til koma, líkt og öðrum sem fara þar hjá. "Við skoðuðum líka húsið í Ártúnshöfðanum og ekki varð hrifningin minni við það. Það var mjög gaman að sýna þeim þetta." Guðný bendir á að rafmagnið sé talsvert ódýrara hér en í Danmörku og þar af leiðandi eru Danir rólegri en við þegar kemur að rafknúnu jólaskrauti. Því reka þeir upp stór augu þegar þeir sjá ljósadýrðina á Íslandi. Kannski ástæða sé til að bjóða upp á sérstakar jólaljósaskoðunarferðir til Íslands líkt og brennu- og flugeldaferðirnar sem útlendingar flykkjast í um áramót.
Innlent Jól Menning Mest lesið Er svo mikill krakki í mér Jólin Það heyrast jólabjöllur Jól Síðustu skiladagar Póstsins Jól Erfið leiðin að jólaskónum Jól Á Betlehemsvöllum Jól Spáð er hvítum jólum fyrir norðan og vestan Jól Fiskur er hátíðarmatur á Ítalíu Jól Sósan má ekki klikka Jól Jólakompumarkaður undir stúku Jól Borgardætur - Þorláksmessa Jól