Innlent

Útvegurinn úti frýs

Jóhann Hauksson
Jóhann Hauksson

Hörpudiskurinn veiðist ekki lengur í Breiðafirði. Rækjan er horfin úr innfjörðum og flóum. Hún veiðist lítið í úthafinu. Kolmunninn finnst ekki. Loðnan er týnd. Samherjaskipum hefur verið breytt í frystigeymslur fyrir síld sem selst ekki í Austur-Evrópu vegna eitraðrar samkeppni við Norðmenn. Olíuverðið er í hæðum. Svo er um gengi íslensku krónunnar, sterkasta gjaldmiðils Evrópu. Hundruð starfa hafa tapast í sjávarútvegi. Bíldudalur, Ísafjörður, Akureyri, Siglufjörður, Stöðvarfjörður. Hvað næst. Seyðisfjörður? Sum sjávarútvegsfyrirtæki halda sjó með því að leigja út kvótann sinn til þess að geta greitt af lánum sínum og borgað laun. Nema aurarnir fyrir leigukvótann séu notaðir til að kaupa meiri kvóta.

Skyldi ríkisstjórnin ekki hafa áhyggjur af þessu?

Hvað til dæmis um Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra?

Jú. Kannski er staðan alvarleg. En misjafnlega alvarleg þó. Gengið hefur verið að hækka sagði hann við blaða- og fréttamenn í vikunni. En verð á afurðum hefur hækkað sagði hann einnig og það hefur hjálpað. Svo er jú olíuverðið hátt. "En verður ekki sjávarútvegurinn að vera í stakk búinn til að lifa af sveiflur? Hann hefur verið að ganga í gegnum erfiða sveiflu. Og gengið mun breytast," sagði Halldór.

Hér rekst hvað á annars horn. Því sjávarútvegurinn er afar skuldsettur í erlendri mynt. Og lækki gengi krónunnar hækka skuldirnar í krónum talið. Á þetta benti Halldór svo sem einnig.

En er þá sjávarútveginum allar bjargir bannaðar? Getur Byggðastofnun hjálpað þeim verst settu í nafni byggðastefnu? Haldið uppi verði eignanna? Nei það getur hún ekki því Byggðastofnun er einnig á hausnum.

Auðvitað er þetta alvarlegt en þetta er ekki svart, sagði forsætisráðherrann við áhugalausa blaðamenn um sjávarútveg.

Það var Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, einu sinni nefndur bjargvætturinn, sem sagði á göngum þingsins í vikunni: "Jú. Ég er sammála Seðlabankanum um eitt. Þegar menn hætta að hósta, hryglurnar verða slitróttar og lífið fjarar út, þá hverfa einnig sjúkdómseinkennin."

En það getur verið snjallt hjá Halldóri að herða að mönnum um stund. Eins og bóndinn í Ölpunum sem sagði forðum: "Í dag ætla ég að vera góður við hundinn minn. Fyrst lúskra ég rækilega á honum. Svo hætti ég."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×