Innlent

Samfylkingin tapar fylgi

Enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn bæti við sig fylgi nýtur ríkisstjórnin ekki stuðnings meirihluta kjósenda. Samfylkingin dalar hins vegar nokkuð á meðan vinstri grænir bæta stöðu sína. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Fréttablaðsins á fylgi stjórnmálaflokkanna.

Framsóknarflokkurinn fengi, ef kosið yrði til Alþingis nú, 9,9 prósent atkvæða, Sjálfstæðisflokkurinn 38,7 prósent, Frjálslyndi flokkurinn 3,4 prósent, Samfylkingin 29,4 prósent og Vinstri hreyfingin - grænt framboð 18,2 prósent.

Sé miðað við skoðanakönnun blaðsins frá því í maí á þessu ári stendur fylgi Framsóknarflokksins í stað en færri segjast aftur á móti styðja frjálslynda nú en þá. Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst um 2,5 prósentustig og VG um 4,1 prósentustig en Samfylkingin dalar hins vegar nokkuð, eða um 4,6 prósentustig.

"Hvað Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna varðar er þetta í takt við okkar tilfinningu að undanförnu," segir Árni Mathiesen fjármálaráðherra. Hann segir hins vegar erfitt að skýra hvað ráði mestu um fylgisaukningu flokks síns. "Auðvitað er samt ánægjulegt þegar leiðin liggur upp á við, en rétt að undirstrika um leið að það er aðeins ein skoðanakönnun sem gildir. Hún er haldin á fjögurra ára fresti og heitir kosningar."

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir niðurstöðurnar ekki koma sér mjög á óvart. "Flokkar hafa tilhneigingu til að fara talsvert upp þegar eitthvað er að gerast. Hjá okkur var formannskjör og landsfundur í maí og þá fórum við verulega upp. Núna var hið sama uppi á teningnum hjá Sjálfstæðisflokknum." Þótt fylgi flokksins hafi dalað frá því að Ingibjörg Sólrún varð formaður hans telur hún ekki orsakasamhengi þar á milli.

"Ríkisstjórnin er fallin samkvæmt þessu og það er augljóst að það er fyrir tilstilli vinstri ­grænna.­ Ég er bærilega sáttur við það," segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×