Innlent

Góð en hljóðlát þingmál

Alþingi lauk störfum síðastliðið föstudagskvöld eftir heldur stranga viku og langa þingfundi. Frumvarp þingmanna allra flokka um breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatt lætur lítið yfir sér en það var afgreitt sem lög frá Alþingi fyrir helgi. Í huga margra þingmanna er þetta eitt mikilsverðasta afrek þingsins.

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sagði að lagabreytingin væri mikið sanngirnismál og réttarbót. Í stuttu máli fela lagabareytingarnar í sér afnám ákvæða um lágmarkssektir vegna vanskila á virðisaukaskatti en þær námu tvöfaldri vangoldinni skattfjárhæð. Mörg dæmi eru þess að einstaklingar hafi sætt afarkostum í þessu efni þrátt fyrir eindregna viðleitni til þess að standa skil á vörslufé. Dómarar hafa þannig neyðst til þess að dæma mann, sem skilað hefur 15 af 20 milljóna króna vanskilaskuld, í 40 milljóna króna fjársekt.

Með lagabreytingunum fyrir helgina er dómurum fært valdið til þess að meta hæfilega refsingu og taka meðal annars mið af málsbótum. Ástæður vanskila geta verið af ýmsum toga. Markaðir bregðast, samkeppni kollsiglir rekstri og vankunnátta eða veikindi geta orsakað greiðsluþurrð. Fyrir helgina vofði yfir þessum einstaklingum sekt að lágmarki tvöföld skattfjárhæðin sem varla getur falið í sér hvatningu fyrir viðkomandi til þess að glíma við aðsteðjandi rekstrarvanda.

Í greinargerð með frumvarpinu stendur einmitt að það hljóti að vera allra hagur, jafnt innheimtuaðila sem gjaldenda að löggjöfin feli í sér hvatningu til þess að upplýsa um stöðu mála og gera upp skuldir. Mikilvægi þingmála fer ekki alltaf saman við hávaðann sem þeim fylgir í þingsölum eða fjölmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×