Vill Davíð hætta við framboðið? Guðmundur Magnússon skrifar 25. janúar 2005 00:01 Þegar þungavigtarmaður í Sjálfstæðisflokknum, Einar Oddur Kristjánsson varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, birtist í sjónvarpsfréttum um síðustu helgi og hvatti til þess að Íslendingar hættu við áform um að fá sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna var ekki hægt að álykta annað en að tíðindi væru í aðsigi í stjórnmálum. Ólíklegt er - sumir segja óhugsandi - að Einar Oddur hefði látið þessi orð falla ef ekki byggi á bak við þau vitneskja hans um afstöðu núverandi utanríkisráðherra, Davíðs Oddssonar, til málsins. Davíð og Einar Oddur eru miklir mátar og nánir samstarfsmenn og vafalaust spillir ekki fyrir að tengdasonur Einars Odds, Illugi Gunnarsson, er aðstoðarmaður Davíðs. Ef svona er í pottinn búið og Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að taka af skarið í málinu er næsta víst að það mun mælast afar illa fyrir í Framsóknarflokknum eins og heyra mátti á ræðu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra á Alþingi á mánudaginn. Hann sagðist ekkert hafa frétt um stefnubreytingu í þessum efnum og dregur svo sem enginn það í efa. En óneitanlega vakti athygli að enginn þingmanna Sjálfstæðisflokksins kom í ræðustól honum til stuðnings eða til að andmæla Einari Oddi Kristjánssyni. Aðild Íslands að Öyggisráðinu er sérstakt hugðarefni Halldórs Ásgrímssonar. Hann viðraði hugmyndina fyrst árið 1998 þegar hann tilkynnti að Ísland stefndi að því að taka sæti Norðurlandanna í ráðinu eftir að kjörtímabili Dana og Norðamanna lyki árið 2006. Að líkindum byggði hann í því efni á ríkisstjórnarsamþykkt. Halldór er þó ekki fyrstur íslenskra stjórnmálamanna til að láta sér detta þetta í hug. Geir Hallgrímsson mun hafa sett málið á dagskrá í utanríkisráðherratíð sinni 1983-1986 en málið komst aldrei á rekspöl. Halldór hóf hins vegar að vinna í málinu af fullum krafti og fól sérfræðingum að gera úttektir á öllum hliðum málsins. Hann hófst handa um að afla Íslandi stuðnings á alþjóðavettvangi og beitti sér m.a. fyrir því að stofnað yrði til stjórnmálasambands við tugi ríkja sem Ísland var í engu sambandi við og hefur ekki viðskipti við. Þannig vildi hann reyna að afla atkvæða á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Jafnframt beitti Halldór sér fyrir því að Íslendingar hækkuðu markvisst framlög sín til þróunaraðstoðar en sérfræðingar hans töldu að með því að sýna áberandi lit á því sviði mundi verða auðveldara en ella að fá þriðja heims þjóðir til að styðja umsókn Íslendinga. Það var þó ekki fyrr en í september 2003 sem formlega var tilkynnt um framboð Íslands til Öryggisráðsins. Það var í ræðu Halldórs Ásgrímssonar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í september. Kvað hann Ísland þannig vilja axla ábyrgð innan samtakanna og leggja sitt af mörkum sem virkur þátttakandi í alþjóðasamfélaginu. Tilkynningin var enginn einleikur utanríkisráðherra því á bak við hana var formleg ríkisstjórnarsamþykkt. Í stefnuræðu Davíðs Oddssonar á Alþingi skömmu seinna vék hann að umsókninni og sagði að öll Norðurlöndin hefðu fallist á að styðja hana. "Er þetta eitt stærsta verkefni sem íslenska utanríkisráðuneytið hefur ráðist í." Ekki var annað að ráða af orðum Davíðs en að hann og Halldór væru algjörlega einhuga í málinu. Í Sjálfstæðisflokknum fékk hugmyndin um umsókn að Öryggisráðinu strax góðan byr. Í grein sem Björn Bjarnason utanríkismálasérfræðingur flokksins birti í Morgunblaðinu 19. október 2002 leyndi sér ekki hrifningin yfir áformunum. "Markmið íslenska ríkisins er að komast í olympíuliðið á vettvangi alþjóðastjórnmála með því að eignast fulltrúa í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna haustið 2008 til setu þar árin 2009 og 2010," skrifaði Björn. Ritstjóri blaðsins skrifaði síðan greinar til stuðnings umsókninni.Hvað hefur breyst? Að líkindum er það tvennt. Annars vegar er smám saman að renna upp fyrir embættismönnum og stjórnmálamönnum að kostnaðurinn við umsóknina er ansi mikill, bæði sá sem þegar er fallinn og sá sem framundan er. Engar nákvæmar kostnaðarupplýsingar hafa að vísu verið birtar, en væntanlega eru það meðal annars stóraukin framlög til þróunarhjálpar sem vaxa mönnum í augum svo og ýmislegt diplómatastarf meðan umsóknarferlið stendur yfir. Milljarðurinn sem Einar Oddur nefndi er vissulega há tala, en hafa ber í huga að ekki hefur verið útskýrt hvernig sú tala er fengin. Halldór Ásgrímsson ber hana til baka. Fróðlegt verður að heyra viðbrögð Einars Odds. Hins vegar er ekki ósennilegt að undirtektir ýmissa á alþjóðavettvangi hafi verið dræmari en vænst hefur verið. Fram að þessu höfum við aðeins heyrt góðu fréttirnar, vinsamlegu undirtektirnar. En víst er að ekki hafa allir sagt já við okkur. Fyrir liggur að fleiri en Íslendingar sækjast eftir sætinu. Það væri gremjulegt að hafa eytt milljarði - ef talan er rétt - og tapa svo kosningunni. Hvernig mundu menn verja það fyrir kjósendum á Íslandi? Rétt er að hafa í huga að núverandi afstaða Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra er ekki kunn. Hann er í fríi í Flórída og mun ekki væntanlegur heim fyrr en eftir ráðherrafund NATO í Brussel í annarri viku febrúarmánaðar. En víst er að samstarfsmenn hans mundu aldrei leyfa sér það sem gest hefur í málinu undanfarna daga nema þeir teldu sig eiga skjól hjá ráðherranum. Auðvitað er þó ekki útilokað að sú vissa þeirra sé á misskilningi byggð eða að Davíð muni taka þann pól í hæðina þrátt fyrir allt að halda umsóknarferlinu til streitu. En hvaða afleiðingar gæti það haft ef Davíð tilkynnir Halldóri að hann vilji ekki setja meiri pening í umsókn um Öryggisráðið? Að best sá að draga saman seglin? Hætta við. Mun Halldór kyngja því eða telja það brjóta gegn fyrirheitum með svo alvarlegum hætti að samstarf stjórnarflokkanna komist í uppnám? Svarið vitum við ekki. En það skyldi ekki útilokað að þetta mál ætti eftir að draga dilk á eftir sér. Ljóst er að bæði í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum hafa ýmsir skimað eftir útkomuleiðum úr stjórnarsamstarfinu sem verið hefur báðum flokkunum afar erfitt á undanförnum mánuðum.Viðauki: Í Tímanum, vefriti Framsóknarlfokksins, er í morgun að finna fyrstu pólitísku viðbrögð framsóknarmanna við framgöngu sjálfstæðismanna. G. Valdimar Valdemarsson ritar þar pistil og segir eins og hér má lesa: "Það er til lítils að vera sjálfstæð þjóð ef við teljum okkur ekki hafa efni á því." Síðan bætir hann við: "En látum vera þó Einar Oddur láti ljós sitt skína með þessum hætti það er ekkert nýtt, hann vildi jú leggja af Seðlabankann fyrr í vetur án þess að koma með nokkur rök fyrir þeirri skoðun sinni. En þegar tengdasonur hans og aðstoðarmaður utanríkisráðherra kemur í fréttir og talar úr og í þá er málið alvarlegt. Var aðstoðarmaðurinn að tala varlega til að styggja ekki tengdaföðurinn eða er það þannig að sjálfstæðismenn séu að hverfa frá framboði til Öryggisráðsins? Það vekur allavega furðu þegar formaður utanríkismálanefndar tekur undir vingulsháttinn í aðstoðarmanninum og það heyrist ekkert í öðrum ráðherrum flokksins. Er Sjálfstæðisflokkurinn höfuðlaus her í fjarveru formannsins eða ber að túlka ummæli vikunnar þannig að aðstoðarmaðurinn og tengdafaðir hans taki við flokknum þegar formaður er erlendis? Ég velti því fyrir mér þegar ég virði fyrir mér ráðherra Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmenn þeirra hvort sjálfstæðismenn hafi ekki eitthvað misskilið orðið fjölskyldupólitík". Greinilega áhugaverðir tímar í stjórnarsamstarfinu!Guðmundur Magnússon -gm@frettabladid.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Magnússon Í brennidepli Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun