Skoðun

Unglingarnir standa sig vel

Stefán Jón Hafstein skrifar
Forvarnir - Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi



Árangur Reykjavíkurborgar í forvarnarmálum er nú orðinn útflutningsvara í evrópsku samstarfsverkefni, þar sem leitað er til þeirra sem taldir eru hafa náð markverðum árangri hér í borg. Þekking og árangur í Reykjavík eru útflutningshæf verðmæti að mati samstarfsþjóða okkar. Þetta og margt annað kom fram á fundi í Ráðhúsinu þar sem komu saman fulltrúar mennta-, tómstunda- og velferðarmála ásamt fræðimönnum til að ræða stöðu vímuvarna í borginni. Árangur hin síðari ár er markverður. Inga Dóra Sigfúsdóttir frá Rannsóknum og greiningu notaði orðin ,,umtalsverður sigur" fyrir Reykjavík þegar hún fór yfir árangur síðari ára og stöðu forvarnarmála. Vímuefnaneysla unglinga í grunnskólum borgarinnar hefur minnkað verulega.

Árangurinn felst í mörgum ólíkum þáttum. Öflugt foreldrasamstarf skilar árgangri, sterkt venslanet í skólum, vel skipulagðar tómstundir - margt stuðlar að þessum sigri sem Inga Dóra nefndi. Sjálfum fannst mér fyrirlestar og upplýsingar sem fram komu á fundinum benda til ákveðinnar viðhorfsbreytingar. Áður hétu ,,forvarnir" eitthvað sem merkti ,,fræðsla og áróður" sem áttu að skila því að unglingar létu ekki freistast. Rannsóknir sýna okkur að í raun þarf að taka á miklu fleiri þáttum sem saman geta kallast mannrækt. Hún felur í sér að unglingum sé gefin hæfni og geta að taka ábyrgð á eigin lífi.

Við sjáum að árangur í vímuvörnum er háður ýmsum þáttum, og niðurstaða er breytileg eftir hverfum borgarinnar. Við teljum að með nýjum þjónustumiðstöðvum í öllum hverfum verði enn betur mögulegt en áður að samþætta og efla forvarnastarf á ýmsum sviðum og taka mið af aðstæðum í hverjum borgarhluta. Því verða haldnir fundir í hverfum borgarinnar á næstunni þar sem farið verður yfir stöðu mála í hverjum borgarhluta, upplýsingum miðlað og sótt í smiðju þeirra sem vel þekkja til á vettvangi. Hverfisráðin munu standa fyrir þessum fundum, enda einmitt hlutverk þeirra að miðla upplýsingum og kalla saman fólk þar sem vænlegt er að þekking og reynsla muni skila enn betri árangri. Til mikils er að vinna og óska má þeim sem unnið hafa að þessum málum til hamingju, en helst þó unglingum í borginni sem langflestir sýna vilja sinn í verki á svo jákvæðan hátt.




Skoðun

Sjá meira


×