Erlent

Leiðtogar Japans og Kína funda

Þjóðarleiðtogar Japans og Kína munu funda í dag til að draga úr þeirri spennu sem myndast hefur milli þjóðanna undanfarnar vikur. Koizumi, forsætisráðherra Japans, og forseti Kína, Hu Jintao, eru staddir á ráðstefnu asískra og afríska þjóðarleiðtoga sem fram fer í Jakarta. Undanfarið hafa fjöldamótmæli farið fram í þó nokkrum kínverskum borgum vegna túlkunar Japana á atburðum Síðari heimsstyrjaldar. Koizumi, sem baðst afsökunar á framferði Japana á stríðstímum í gær, segist binda vonir við fundinn með Kínaforseta, enda brýn þörf á jákvæðum samskiptum þjóðanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×