Erlent

John Major aðlaður

John Major, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, var aðlaður í dag. Major var leiðtogi breska Íhaldsflokksins á árunum 1990-97 en hann tók við því hlutverki af Margaret Thatcher. Hann varð forsætisráðherrra árið 1992 en laut í lægra haldi fyrir Tony Blair og Verkamannaflokknum í þingkosningunum 1997.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×