Innlent

Á 180 km hraða á Kringlumýrarbraut

Maður var stöðvaður á mótorhjóli sínu á 180 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut í Reykjavík um tvöleytið í nótt en hámarkshraði á þeirri götu er aðeins 80 kílómetrar á klukkustund. Maðurinn var sviptur ökuréttindum á staðnum og segir lögreglan manninn verða ákærðan og að hann fái að öllum líkindum háa sekt, en hversu há hún verður fer eftir ferli mannsins í umferðinni til þessa. Lögreglan vill benda fólki á að fara varlega í umferðinni og hugsa sig tvisvar um áður en það tekur ákvörðun sem gæti kostað það sjálft lífið og aðra. Annars var rólegt hjá lögreglunni um land allt þessa björtu vornótt og lítið um ölvun í miðbæjum bæja og borgar þrátt fyrir töluverðan fjölda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×