Innlent

Fundu lík af Brasilíumanni

Lík af manni fannst á skeri út frá Stokkseyri um klukkan 17 í gær. Samkvæmt lögreglunni á Selfossi er talið að líkið sé af Brasilíumanninum Ricardo Correra Dantas sem hefur verið saknað síðan 2. apríl síðastliðinn þegar hann sást ganga út af heimili þar sem hann dvaldi á Stokkseyri. Lögreglan á Selfossi segist ekki geta gefið frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Rannsókn á málinu er hafin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×