Innlent

Grunaðir um ölvun við akstur

Klukkan hálfsjö að morgni sunnudags barst lögreglunni í Kópavogi tilkynning um hugsanlega ölvaðan ökumann bifreiðar á Breiðholtsbraut við Nýbýlaveg. Þegar lögreglan nálgaðist bílinn ók bifreiðin af stað. Lögreglan stöðvaði þá bifreiðina og kom í ljós að bílstjórinn hafði verið farþegi í annarri bifreið og boðist til að keyra bílinn fyrir umræddan ökumann. Ekki vildi betur til en svo að þeir eru báðir grunaðir um ölvun við akstur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×