Innlent

Hald lagt á íslenska fána

Lögreglan í Reykjanesbæ dró niður og lagði hald á þrjá íslenska fána sem blöktu við hún í Sandgerði í nótt. Samkvæmt fánalögum má íslenski fáninn ekki vera uppi eftir sólarlag en sólarlag var rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Sektir liggja við brotum á fánalögum en að sögn lögreglu telst það sjálfsagt næg refsing að eigendur fánanna þurfi að gera sér ferð á lögreglustöðina til að leysa fánanna úr haldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×