Erlent

Kona næsti kanslari Þýskalands?

Kristilegir demókratar í Þýskalandi tilkynntu í dag að Angela Merkel, formaður flokksins, yrði kanslaraefni þeirra í þingkosningunum sem væntanlega verða haldnar í september. Kristilegir demókratar hafa miklu meira fylgi í skoðanakönnunum en jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröders kanslara. Ef Kristilegir demókratar fara með sigur af hólmi verður Merkel fyrsta konan sem gegnir embætti kanslara í Þýskalandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×