Innlent

Helgin með besta móti

Þó víða hefði verið erill hjá lögreglu um land allt voru lögreglumenn almennt afar ánægðir með helgina. Dansleikir voru víða eins og ávallt fyrir Sjómannadaginn en það er af sem áður var að kvíði væri í mönnum vegna þess enda þessi helgi undanfarin ár verið með besta móti. Lítið var um pústra og slagsmál á landsvísu og ekki voru fleiri ölvaðir ökumenn teknir en um venjubundna helgi víðast hvar. Fíkniefnamál voru fá og mest hafði lögregla að gera við að liðsinna fólki en hafa af því önnur afskipti. Hafði enda einn lögreglumaðurinn á orði að Sjómannadagshelgin væri orðin tilhlökkunarefni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×