Setur ofan í við umboðsmann 8. júní 2005 00:01
Landbúnaðarráðherra setur ofan í við umboðsmann Alþingis og segir ákveðna hluti í nýju áliti hans ekki vera í verkahring umboðsmanns eða á hans valdi. Umsækjandi um stöðu rektors Landbúnaðarháskóla Íslands, sem ekki fékk stöðuna, kvartaði til umboðsmanns Alþingis þar sem hann taldi að Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hafi verið vanhæfur til að skipa í embættið vegna vinfengis við þann sem embættið fékk. Umboðsmaður taldi að ráðherra hafi ekki verið vanhæfur því tengsl hans og þess sem ráðinn var hafi ekki verið þess eðlis. Þegar umboðsmaður var að vinna málið lagði hann ýmsar spurningar fyrir landbúnaðarráðherra. Ráðherrann svaraði skriflega og sagðist hafa talið sig hafa rökstutt ákvörðun sína með fullnægjandi hætti. Síðar í bréfinu segist hann ekki telja það í verkahring umboðsmanns Alþingis að yfirfara eða endurskoða ákveðin efnisleg atriði; mat á hæfi og hæfni umsækjenda, þar með talið frammistöðu þeirra í starfsviðtölum, liggi hjá landbúnaðarráðherra og að efnislegt endurmat með umbeðnum samanburði á einstökum umsækjendum sé ekki á valdi umboðsmanns Alþingis. Í áliti sínu gerir umboðsmaður athugasemdir við að svör landbúnaðarráðherra og upplýsingagjöf til umboðsmanns Alþingis hafi ekki verið í samræmi við þær skyldur sem hvíldu á ráðherra sem stjórnvaldi gegn umboðsmanni. Umboðsmaður beinir þeim tilmælum til ráðherra að framvegis verið tekið tillit til þessara athugasemda í svörum til umboðsmanns Alþingis.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Varar við viðskiptum við Öskju eftir miklar hrakfarir Innlent Banaslys við Fossá Innlent Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Innlent „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ Innlent Ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG Innlent Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð Innlent Þurfa að skila útprentuðum eyðublöðum því ekki tókst að uppfæra Völu Innlent „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Innlent Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Erlent Fleiri fréttir Fjórar tilkynningar um innbrot og þjófnaði og þrír handteknir Þurfa að skila útprentuðum eyðublöðum því ekki tókst að uppfæra Völu Varar við viðskiptum við Öskju eftir miklar hrakfarir Ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Staðan miklu alvarlegri þegar vígvöllurinn er stærri Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Banaslys við Fossá Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Sjá meira