Innlent

Vörubíl ekið á stúlku

Vörubíl var ekið á tíu ára stúlku á gatnamótum Kringlumýrar- og Miklubrautar laust eftir hádegið í gær. Tók vörubílstjórinn hægri beygju á grænu ljósi á sama tíma og stúlkan fór yfir gangbraut og lenti hún undir afturhjóli bílsins. Telpan var flutt á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss en óttast var að hún hefði slasast mjög alvarlega. Til allrar hamingju meiðsl hennar reyndust minni en óttast var en hún slasaðist mest á læri . Var hún lögð inn á sjúkrahúsið þar sem hún verður næstu vikurnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×