Innlent

Ógnaði fólki með skrúfjárni

Úlpuklæddur maður framdi rán á bensínafgreiðslustöð Olís í Hamraborg í Kópavogi laust eftir klukkan fimm í gærdag. Ógnaði hann tveimur starfsmönnum stöðvarinnar með skrúfjárni áður en hann hvarf brott með sölu dagsins. Notaði maðurinn skrúfjárnið til að opna sjóðsvélina þaðan sem hann tók talsvert af peningum og hvarf svo á brott gegnum bílageymsluna undir Hamraborg en þaðan eru fjölmargir útgangar. Leit lögreglu bar engan árangur en vonast er til að öryggismyndavélar í bensínsstöðinni og í bílageymslunni komi að notum við að bera kennsl á manninn..



Fleiri fréttir

Sjá meira


×