Erlent

Lítill árangur af viðræðunum

Lítið virðist hafa komið út úr viðræðum Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, sem fram fóru í Ramallah á Vesturbakkanum í dag. Á blaðamannafundi að viðræðunum loknum sagði Rice að Ísraelar og Palestínumenn yrðu að vinna saman að farsælli lausn á brottflutningi herliðs Ísraelsmanna frá Gasa. Ekki verður annað sagt en ummælin séu í „diplómatískari“ kantinum. Rice mun einnig ræða við ísraelska stjórnarmenn um helgina. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×