Erlent

Heldur hlífiskildi yfir Mugabe

Breskur þingmaður hefur gagnrýnt forseta Suður-Afríku harkalega fyrir að halda hlífiskildi yfir Robert Mugabe, forseta Simbabves. Þingmaðurinn er nýkomin úr leynilegri heimsókn til Simbabves og segir Mugabe vera í stríði við eigin þjóð. Hundruð þúsunda manna hafa orðið að flýja heimili sín í Simbabve að undanförnu, og ekki bara flýja heldur brjóta niður hús sín. Ríkisstjórn Mugabes vill fá landið sem þessi hús standa á til einhverra nota og hefur því lýst byggingu þeirra ólöglega. Margt af þessu fólki hefur orðið að flýja út í sveitir landsins og þannig misst þau störf sem það hugsanlega hafði til að framfleyta fjölskyldu sinni. Raunar er atvinnuleysi ógnvænlegt í Simbabve. Simbabve, sem eitt sinn var blómlegt land og flutti út matvæli, er löngu orðið gjaldþrota undir ógnarstjórn Mugabes. Íbúarnir verða að treysta á matargjafir erlendis frá og jafnvel þann mat fær það ekki nema það styðji forsetann. Það má eiginlega segja að Mugabe sitji í skjóli Thabos Mbekis, forseta Suður-Afríku, sem lagði blessun sína yfir sigur Mugabes í nýafstöðnum kosningum og hefur staðið gegn því að hann yrði beittur refsiaðgerðum. Þetta gagnrýnir breski þingmaðurinn, Kate Hoey. Hún segir eiginlega hafa ríkt þagnarsamsæri því ef Bretar hefðu afskipti af Simbabve myndi það minna á nýlendutímann. „Þetta er fátækasta fólkið í Afríku og þess eigin ríkisstjórn er að koma því í skelfilegar aðstæður. Ríkisstjórnin okkar verður að gera eitthvað í þessu í stað þess að sitja hjá og fylgjast þegjandi með þessu gerast,“ segir Hoey. Hoey er þingmaður verkamannaflokks Tonys Blair og er nefndarforseti í fjölflokka þingnefnd sem fer með mál Simbabves.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×