Erlent

Efnavopna-Ali yfirheyrður

Ali Hassan al-Majid, betur þekktur sem „Efnavopna-Ali“, er á meðal þeirra sem yfirheyrðir hafa verið undanfarna daga í undirbúningnum fyrir réttarhöldin yfir harðstjórn Saddams Husseins í Írak. Ali er sagður hafa verið einn nánasti samstarfsmaður Saddams en hann var síðast yfirheyrður í desember, að því er talsmaður Bandaríkjahers greindi frá í dag. Búist er við að réttað verði yfir Saddam innan fárra mánaða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×