Innlent

Skemmdir eftir árekstur á brú

Tveir bílar eru mikið skemmdir eftir að hafa rekist saman síðdegis á sunnudag á einbreiðri brú yfir Hoffellsá. Ökumenn og farþegar sluppu hins vegar við meiðsli, að sögn lögreglu á Höfn í Hornafirði. Í öðrum bílnum voru hjón með tvö börn á ferðalagi, en í hinum var ein kona. Fátt er vitað um tildrög slyssins annað en að lögregla segir skyggni hafa verið leiðinlegt þegar áreksturinn varð, auk þess sem brúin stendur hærra en vegurinn í kring og því blint upp á hana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×