Innlent

Leitar fjórða manns vegna bílbruna

Lögreglan leitar enn fjórða mannsins vegna bíls sem kveikt var í í Heiðmörk í gærmorgun. Þremur ungmennum, 15 til 17 ára, var sleppt í gær eftir að þau játuðu sinn þátt í málinu. Lögreglu var tilkynnt um eldinn á sjötta tímanum í gærmorgun og þegar komið var á staðinn stóð bíllinn, sem hafði verið stolið, í ljósum logum og fjögur ungmenni í nágrenninu. Þrjú þeirra voru hlaupin uppi en lögreglan telur sig vita hver fjórði maðurinn er. Við yfirheyrslur játuðu þremeningarnir innbrot í tvær aðrar bifreiðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×