Innlent

Gott að ránum hafi ekki fjölgað

Afbrotafræðingur hjá Ríkislögreglustjóranum segir ánægjulegt að úttekt sýni að ránum hafi ekki fjölgað þrátt fyrir breytta samfélagsmynd. 36 rán eru framin á Íslandi á ári samkvæmt athugun félagsfræðinema við Háskóla Íslands. Ránum á opnum svæðum hafi fækkað verulega síðustu ár, en að sama skapi hefur vopnuðum bankaránum fjölgað. Rannveig Þórisdóttir, afbrotafræðingur hjá Ríkislögreglustjóra, segir eðli rána hafa breyst. Fyrir nokkrum árum voru einstaklingar rændir á götum úti, síðan hafi komið tímabil þar sem pítsusendlar hafi verið rændir. Síðustu tvö ára hefur svo bankaránum fjölgað. Greinilegt er að ræningjar aðlaga sig að breyttum aðstæðum og færa sig þangað þar sem gróðavonin er meiri. En getum verið sátt við þess að niðurstöðu þar sem ránum hefur ekki fækkað? Rannveig segir að raun sé mjög ánægjulegt að ránum fjölgi ekki enda hafi samfélagsmyndin breyst og orðið harðari, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Að sjálfsögðu verði þó að kanna það hvort grípa þurfi til aðgerða til að fækka ránum. Meðan rán séu ekki fleiri á hverju ári sé spurning hversu mikið sé hægt að fækka þeim. Aðspurð hvernig hægt sé að bregðast við þessum nýju upplýsingum og nýta þær til að fækka ránum segir Rannveig að mikilvægast sé að horfa til þess hvernig aðstæður geti aukið líkur á ránum. Menn hafi t.d. séð tækifæri í því að ræna pítsusendla sem hafi verið einir á ferð með fjármuni eða verslun þar sem aðeins hafi verið einn starfsmaður. Að gæta þess að hafa ekki mikla peninga í afgreiðslukössum og að fólk sé ekki eitt í verslunum geti dregið úr líkum á ránum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×