Innlent

Fylgst náið með barnaníðingum

Dómsmálaráðherrar iðnveldanna skera á alþjóðlegt tengslanet barnaníðinga með því að setja á laggirnar sameiginlegan gagnagrunn með upplýsingum um þá og framleiðendur barnakláms. Lögreglan á Íslandi fagnar þessu framtaki og telur að það muni auðvelda rannsókn slíkra mála hér á landi. Með gagnagrunninum verður hægt að ná í upplýsingar um þekkta barnaníðinga og fylgjast með ferðum þeirra. Einnig verða í grunninum upplýsingar um barnaklám og framleiðendur þess konar efnis. Með gagnagrunninum verður mun auðveldara að fylgjast með barnaklámi á Netinu og þeim sem setja þannig efni þar inn. Nú þegar eru komnar um 300 þúsund myndir af börnum sem hafa verið beitt kynferðisofbeldi við framleiðslu barnakláms í gagnagrunn sem er starfræktur á vegum alþjóðalögreglunnar Interpol, sem sameinast nýja grunninnum. Aðspurður hvaða þýðingu gagnagrunnurinn hafi fyrir íslensk lögregluyfirvöld segir Sigurbjörn Víðir Eggertsson aðstoðaryfirlögregluþjónn að eriftt sé að segja til um það fyrir fram en öll viðleitni yfirvalda til þess að stöðva þessa brotastarfsemi skipti verulegu máli. Spurður hvort oft þurfi að leita upplýsinga um barnaníðinga erlendis játar Sigurbjörn því. Lögregla starfi með erlendum lögregluyfirvöldum í slíkum málum og eflaust muni gagnagrunnurinn auðvelda leiðina til þess að ná í upplýsingar, en þessi brot virðist ekki eiga sér nein landamæri. Lögregluyfirvöld vita ekki enn hve margir íslenskir barnaníðingar verði skráiðir í hinn alþjóðlega gagnagrunn en það fer meðal annars eftir því hve langt skráningin nær aftur í tímann. Meðal annars verða upplýsingar úr gagnagrunninum notaðar á flugvöllum víða um heim og þannig verður hægt að fylgjast með ferðum barnaníðinga. Spurður hvort gagnagrunnurinn muni koma að gagni við rannsókn á málum barnaníðinga telur Sigurbjörn það tvímælalaust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×