Innlent

Ungur maður ók á kind sem drapst

25 ára gamall maður ók um klukkan níu í gærmorgun fólksbíl sínum á kind þannig að hún drapst og bíllinn skemmdist. Áreksturinn varð í Holtsmúlasundi, miðja vegu milli Varmahlíðar og Sauðárkróks. Ökumann bílsins sakaði ekki, en honum var að sögn lögreglu á Sauðárkróki nokkuð brugðið eftir atvikið. Á þessum árstíma segir lögregla nokkur brögð að lausagöngu bjúfjár um þessar slóðir og því vissara fyrir ökumenn að hafa allan vara á við aksturinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×