Innlent

Slógust tveir við lögreglu

Tveir menn um tvítugt voru handteknir snemma í gærmorgun eftir tilraun til að brjótast inn í söluturninn Sunnutorg við Langholtsveg um nóttina. Til mannanna sást þar sem þeir voru að reyna að komast inn um klukkan hálf fimm um nóttina, en að sögn lögreglu virtist sem styggð hafi komið að þeim þegar þjófavarnarkerfi fór í gang. Lögregla greip svo mennina á Bústaðavegi skömmu fyrir klukkan sjö og yfirbugaði þá, en þeir veittu mótspyrnu við handtökuna. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglu. Þeir voru vistaðir í fangageymslu og yfirheyrðir síðdegis í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×