Erlent

Hagsmunir Írana á oddinum

MYND/AP
Íranar munu halda áfram kjarnorkuviðræðum við Evrópusambandið með hagsmuni sína að leiðarljósi. Þetta sagði nýkjörinn forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, á blaðamannafundi í dag. Aðspurður sagði forsetinn einnig að hann sæi enga þörf á sérstökum viðræðum við Bandaríkjamenn um kjarnorkuframleiðslu þjóðar sinnar. Harðlínumenn ráða nú öllu í Íran eftir að hinn íhaldssami Ahmadinejad vann óvæntan en afgerandi sigur í forsetakosningunum í fyrradag. Hann hefur hingað til varið kjarnorkuáætlun Írana af krafti og ummælin í dag þykja því ekki koma á óvart.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×