Innlent

Missti bílinn út af og slasaðist

Kona slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar hún missti hægra hjól bíls síns út af bundnu slitlagi á Vesturlandsvegi í grennd við Langá á Mýrum í gærkvöld. Konan reyndi að snöggbeygja inn á veginn aftur en við það missti hún stjórn á bílnum sem reif sig upp á veginn og fór öfugu megin út af. Svo vel vildi til að enginn bíll kom á móti þá stundina. Þetta er annað slysið í vikunni sem verður með þessum hætti. Nú fer í hönd mikil umferðarhelgi og varar lögregla við þessu, einkum þar sem vegaxlirnar utan slitlagsins eru oft lægri en slitlagið og á fáfarnari vegum er slitlagið nánast einbreitt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×