Innlent

Ákæra birt

Ríkissaksóknari birti í gær karlmanni á þrítugsaldri ákæru fyrir stórfellda líkamsárás aðfaranótt 12. desember síðastliðinn. Karlmaður á sextugsaldri beið bana í árásinni sem átti sér stað á veitingahúsinu Ásláki í Mosfellsbæ. Árásarmanninum er gefið að sök að hafa kýlt manninn með krepptum hnefa með fyrrgreindum afleiðingum. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og einnig er krafist átján milljóna króna samanlagt í miskabætur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×