Innlent

Tvær nauðganir í rannsókn

Grunur liggur á að tveimur konum hafi verið nauðgað um helgina, önnur var á Færeyskum dögum í Ólafsvík, en hin á humarhátíðinni í Höfn í Hornafirði. Grunur er á að sextán ára stúlku hafi verið nauðgað í Ólafsvík. Að sögn lögreglunnar á Snæfellsnesi mundi stúlkan lítið og gat gefið litlar upplýsingar um ódæðismanninn. Farið var með stúlkuna á neyðarmóttöku og talið er að henni hafi verið gefin ólyfjan. Þá kærði kona á þrítugsaldri nauðgun til lögreglunnar á Höfn að morgni gærdags. Verið er að rannsaka málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×