Innlent

Níu mánuðir fyrir ýmis brot

Rúmlega tvítugur maður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis eignaspjöll í Reykjanesbæ, fíkniefnabrot og fyrir að hafa ráðist inn á heimili í Reykjavík og valdið húsráðanda þar áverkum. Maðurinn stóð að innflutningi á rúmum tveimur og hálfu kílói af kannabisefnum en tollverðir í Reykjavík fundu efnin. Hann var einnig dæmdur til að greiða tæpar 350 þúsund krónur í sakarkostnað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×