Innlent

Mótmæla uppsögnum gæslukvenna

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins mótmæla uppsögnum tuttugu og tveggja starfskvenna á gæsluvöllum Reykjavíkurborgar sem sagt var upp um síðustu mánaðamót. Í yfirlýsingu frá borgarfulltrúm flokksins segir að uppsagnirnar séu skýr brot á loforðum R-listans um að viðkomandi starfsmönnum yrðu fundin önnur störf við hæfi hjá borginni. Meðal þeirra sem sagt var upp er fatlaður starfsmaður sem starfað hefur hjá borginni frá árinu 1978.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×