Innlent

Erilsamar nætur í Reykjavík

Helgin var síður en svo róleg hjá lögreglunni í Reykjavík þrátt fyrir að fjöldi fólks væri utanbæjar um helgina. Næturnar voru að sögn lögreglu erilsamar og alls ekki minna að gera en um venjulega helgi þótt minna af fólki væri í bænum. Fíkniefni fundust á mörgum um helgina, en ekki hafði gefist tími til að taka fjöldann saman. Þá komu upp á annan tug ölvunarakstursmála. Ekki var mikið um tilkynningar á innbrotum og vonaðist lögreglan til þess að eftirlit með ómerktum bílum hefði skilað árangri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×