Innlent

Ungt fólk fái tækifæri í kosningum

Samband ungra framsóknarmanna hvetur flokksmenn um allt land að leggja áherslu á sem öflugasta aðkomu ungra að framboðum á vegum flokksins í sveitarstjórnarkosningum á næsta ári. Í tilkynningu frá SUF segir að ungt fólk í Framsóknarflokknum sé tilbúið að taka að sér ábyrgðarmikið starf við að byggja upp flokkinn til framtíðar og standa að hugsjónum flokksmanna. Því hvetji stjórn SUF til þess að fléttulistar verði sem víðast notaðir við val á frambjóðendum þar sem til dæmis ungir frambjóðendur skipi annað hvert sæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×