Innlent

Rætt um að hætta við hækkun

Borgarráð er nú að ræða tillögu Alfreðs Þorsteinssonar um að hætta við að hækka leikskólagjöld námsmanna. Gera má ráð fyrir að mikil mannekla í leikskólum borgarinnar verði einnig rædd. Eins stefndi í að ekki tækist að manna frístundaheimili borgarinnar en Íþrótta- og tómstundaráð hefur náð að taka inn flest þau börn sem sóttu um fyrir auglýstan umsóknarfrest. Ástandið þar er því ekki eins slæmt og talið var í fyrstu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×