Innlent

Ósáttir við skýrslu um reit

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru ósáttir við skýrslu innri endurskoðnar borgarinnar um lóðarkaup á Stjörnubíólóðinni og segja vinnubrögðin óvönduð. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir forsendur til grundvallar skýrslunni að miklu leyti rangar. Þar sé miðað við markaðsvirði lóðarinnar eins og það var árið 2003 en lóðin var keypt í júlí 2002, en húsnæðisverð hefur verið í örum vexti. Kjartan segir lóðarkaupin af Jóni Ólafssyni á sínum tíma hafa verið óeðlileg og telur að greitt hafi verið um 50 til 70 milljónum króna meira fyrir lóðina en eðlilegt hefði verið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×