Addo hreifst af Herði og Guðmundi 26. ágúst 2005 00:01
Otto Addo, leikmanni Mainz í Þýskalandi þótti erfitt að leika í nepjunni á Laugardalsvelli í gærkvöldi í 2-0 sigri liðsins á Keflvíkingum, en þótti íslenska liðið standa sig vel og hvað þá Guðmund Steinarsson og Hörð Sveinsson hafa verið erfiða andstæðinga. "Okkur datt ekki í hug að vanmeta lið Keflavíkur, enda voru þeir gríðarlega seigir í fyrri leiknum heima," sagði Addo, sem er upprunalega Ganamaður en er með þýskt ríkisfang. "Það eru nú flest liðin í keppninni á þessu stigi nokkuð frambærileg og þó við höfum að mínu mati ráðið ferðinni í þessum leikjum, er ekkert gefið í þessu. Við stilltum upp nokkuð sterku liði hérna, því við vissum í rauninni ekkert hvernig aðstæðum mætti búast við á Íslandi. Við erum sáttir við þennan sigur og nú bíður bara erfiður leikur í Bundesligunni um helgina," sagði Addo sem aðspurður sagðist hafa hrifist nokkuð af leik þeirra Harðar Sveinssonar og Guðmundar Steinarssonar. "Þeir eru hörkuduglegir leikmenn og fílhraustir, þannig að við áttum í raun fullt í fang með að halda aftur af þeim. Annars er Keflavík bara með hörkulið, svo að við erum vel sáttir við að vinna með sömu markatölu hér og við gerðum heima í Þýskalandi," sagði Addo að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni HK flaug upp í Olís-deildina Fiorentina - Inter | Albert tekur á móti toppliðinu í síðasta leik fyrir sprautumeðferð 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille KR - Njarðvík | Toppslagur í Vesturbænum O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Gerpla fullkomnaði frábæra bikarhelgi Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Rodman í heiðurshöll WWE Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Friðrik Leó áfram en Birgir Leifur úr leik í Marsfárinu Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjá meira