Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Aron Guðmundsson skrifar 20. júní 2026 21:02 Perla Sól Sigurbrandsdóttir er komin áfram í undanúrslitin eftir æsispennandi einvígi. Vísir/Getty Boðið var upp á æsispennandi einvígi í bæði karla- og kvennaflokki þegar að átta liða úrslit Íslandsmótsins í holukeppni fóru fram í dag.
Holukeppnin hjá konunum fer fram á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi og tryggðu þær Guðrún Brá Björgvinsdóttir (Golfklúbburinn Keilir), Perla Sól Sigurbrandsdóttir (Golfklúbbur Reykjavíkur), Heiða Rakel Rafnsdóttir (Golfklúbbur Mosfellsbæjar) og Fjóla Margrét Viðarsdóttir (Golfklúbbur Suðurnesja) sæti í undanúrslitum mótsins með sigri í sínum einvígum í dag. Guðrún, Heiða og Fjóla unnu sín einvígi nokkuð örugglega á meðan að Perla Sól mætti Elsu Maren Steinarsdóttur (Golfklúbburinn Leynir) í hörku einvígi. Staðan milli þeirra var jöfn eftir átján holur og þurfti því að grípa til bráðabana. Á fyrstu holu bráðabanans fengu þær báðar skolla. Báðar fengu þær svo par á annarri holu bráðabanans. Það var ekki fyrr en á þriðju holu bráðabanans sem úrslitin réðust. Perla Sól fór þá holu á pari á meðan að Elsa Maren fékk skolla. Perla Sól tryggði sér þar með sæti í undanúrslitunum. Undanúrslitin líta svona út: - Guðrún Brá Björgvinsdóttir vs. Perla Sól Sigurbrandsdóttir (Einvígi þeirra hefst klukkan átta í fyrramálið) - Heiða Rakel Rafnsdóttir vs. Fjóla Margrét Viðarsdóttir (Einvígi þeirra hefst korter yfir átta í fyrramálið) Sigurvegarar hvors einvígis fyrir sig mætast í úrslitaeinvígi mótsins á morgun. Þurfti einnig bráðabana hjá körlunum Þeir Veigar Heiðarsson (Golfklúbbur Akureyrar) og Birgir Björn Magnússon (Golfklúbbur Keilis) unnu sín einvígi í átta liða úrslitunum hjá körlunum nokkuð örugglega en leikið er á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbu Suðurnesja. Spennan var meiri í hinum tveimur einvígum átta liða úrslitanna. Aron Emil Gunnarsson (Golfklúbbur Selfoss) þurfti að hafa fyrir hlutunum gegn Svanbergi Adda Stefánssyni (Golfklúbbur Keilis) en var þó yfir allar seinni níu holurnar en þó með minnsta mun síðustu fjórar. Aron sigldi þó heim sigri. Í einvígi Björns Viktors Viktorssonar (Golfklúbbur Leynis) og Guðmundar Ágústs Kristjánssonar (Golfklúbbur Reykjvíkur) þurfti bráðabana til að skera úr um hvor kylfingurinn færi í undanúrslit. Aðeins eins holu bráðabana þurfti þar til því að fyrstu holuna fór Björn Viktor á skolla en Guðmundur Ágúst á gullfallegum fugli og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitunum á morgun. Undanúrslitin líta svona út: - Guðmundur Ágúst Kristjánsson vs. Aron Emil Gunnarsson (Einvígi þeirra hefst klukkan átta í fyrramálið) - Birgir Björn Magnússon vs. Veigar Heiðarsson (Einvígi þeirra hefst klukkan korter yfir átta í fyrramálið) Úrslitaeinvígið fer síðan fram seinna sama dag.
Golf Mest lesið Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Fótbolti FIFA heldur settri stefnu Fótbolti Franco Baresi er látinn Fótbolti Palmer steinsvaf meðan enska landsliðið spilaði á HM Fótbolti Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Enski boltinn Asíuþjóðirnar taka undir áhyggjur af áætlunum FIFA Fótbolti Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Enski boltinn Lítið af möguleikum fyrir Liverpool í vörninni Fótbolti Mun það sama gerast við Anderson og gerðist við Philips hjá City? Fótbolti Concacaf mótmælir Fifa en sniðgengur ekki Fótbolti Fleiri fréttir Gagnrýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn Danir og Norðmenn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Sjá meira