Innlent

Þorbjörg sækist eftir 4. sæti

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í 4. sæti á lista sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Þorbjörg er menntuð á sviði uppeldis- og menntunarfræða og lauk MA-prófi í námssálfræði frá háskólanum í Washington en hún starfar nú sem ráðgjafi menntamálaráðherra. Þá hefur Steinn Kárason ákveðið að gefa kost á sér í 5.- 6. sæti á sama lista en Steinn er menntaður á sviði alþjóðaviðskipta og umhverfisfræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×