Innlent

Passar upp á gengið

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að mikill missir verði að Davíð þegar hann hættir afskiptum af stjórnmálum. "Hann er sá stjórnmálamaður sem hefur komið hvað mestu í verk af íslenskum stjórnmálamönnum, bæði fyrr og síðar og hefur gjörbreytt þessu samfélagi." Gunnar segist vona að Davíð muni halda fullri heilsu og líst bara vel á að hann færi sig um set yfir í Seðlabankann. "Hann mun passa upp á gengið fyrir okkur."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×