Innlent

Fagna yfirlýsingu Þorgerðar

Landssamband sjálfstæðiskvenna fagnar yfirlýsingu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um að hún ætli að bjóða sig fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem haldinn verður um miðjan næsta mánuð. Landssambandið telur að Þorgerður Katrín hafi í störfum sínum fyrir Sjálfstæðisflokkinn á síðustu árum starfað ötullega í anda sjálfstæðisstefnunnar og fylgt henni eftir af festu og öryggi. Hún hafi axlað síaukna ábyrgð á vettvangi stjórnmála og sýnt að hún sé traustsins verð. Þorgerður Katrín njóti virðingar og víðtæks stuðnings meðal flokksmanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×