Innlent

Davíð skoðaði Heimssýningu í Japan

Davíð Oddsson utanríkisráðherra skoðaði í dag Heimssýninguna í Aichi í Japan. Hann fór meðal annars í norræna sýningarskálann og þann japanska. Á morgun mun utanríkisráðherra eiga fund með Nobutaka Machimura, utanríkisráðherra Japans. Á miðvikudaginn tekur utanríkisráðherra þátt í viðskiptaráðstefnu þar sem íslensk fyrirtæki munu kynna starfsemi sína. Í för með utanríkisráðherra er viðskiptasendinefnd skipuð fulltrúum um 20 fyrirtækja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×