Innlent

Geir frekar fylgjandi framboðinu

Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir ekkert athugavert við ummæli fosætisráðherra á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um að Íslendingar væru í framboði til Öryggisráðsins. Yfirlýsingin hafi verið gefin í samráði við Geir H. Haarde, verðandi utanríkisráðherra, sem frekar hefði verið fylgjandi framboði en ekki. Gerð var kostnaðaráætlun fyrir framboðið í ráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar og hljóðaði hún upp á sex hundruð milljónir. Davíð Oddsson segist óttast að þegar ákvörðun liggi endanlega fyrir að henni verði ekki breytt og þá geti það gerst þegar kosningabaráttan harðni að tilhneigingin verði að leggja frekar meiri peninga í þetta en minni. Hann kveðst hafa óttast að framboð bæði Tyrklands og Austurríkis myndi hleypa aukinni hörku í kosningabaráttuna með tilheyrandi kostnaði. Hann hafi því látið fara þess á leit við Austurríkismenn að þeir yrðu seinna í rununni til að reyna að eyða óvissu um að mörg hundruð milljónir fari út um gluggann, þ.e. ef Ísand kæmist svo ekki inn í Öryggisráðið. Þrír starfsmenn hafa verið við störf fyrir Ísland á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, lengst af frá 1980. Einn bættist við árið 2001 og annar 2003, beinlínis í tengslum við fyrirhugað framboð til Öryggisráðsins. Hvert stöðugildi kostar um það bil þrjátíu fjörutíu milljónir á ári þannig að um tvö hundruð milljónum hefur verið varið til framboðsins nú þegar. Davíð segir ekkert athugavert við ummæli Halldórs Ásgrímssonar á þingi Sameinuðu þjóðanna. Það sé ríkur vilji innan ríkistjórnarinnar hjá „mörgum sterkum ráðherrum“ að fara þessa leið og hann geti sætt sig við það, enda eigi hann ekki að ráða þessu þar sem hann sé á síðustu metrunum í pólitík. Yfirlýsingin hafi líka verið gefin í samráði við Geir H. Haarde, verðandi utanríkisráðherra, sem frekar hefði verið fylgjandi framboði en ekki. „Hann hefur jafnframt, sem skiljanlegt er - hann er fjármálaráðherra - viljað leita leiða hvort það væri hægt að gera það með ódýrari og hagkvæmari hætti. En hann verður auðvitað að tjá sig um það,“ segir Davíð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×