Mannréttindanefndin rúin trausti 20. september 2005 00:01 "
Mun meiri vinnu er þörf," sagði Davíð Oddsson utanríkisráðherra um umbætur á skipulagi Sameinuðu þjóðanna í ræðu sinni á sextugasta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gærkvöldi. Davíð sagði Ísland hafa haft miklar væntingar til leiðtogafundar Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku en áréttaði að taka þyrfti á mannréttindamálum með meira afgerandi hætti en verið hefur. "Skoðun Íslands er að mannréttindi og ábyrgð ríkja gagnvart þegnum sínum séu atriði sem ekki er nægilega vel tekið á," sagði hann. Davíð sagði mannréttindanefnd SÞ rúna trausti og í raun óstarfhæfa. "Trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna er ógnað," sagði hann og benti á að fyrir lægi samþykkt um stofnun sérstaks mannréttindaráðs. "Það ætti að vera smærra í sniðum en nefndin og starfa árið um kring til að geta brugðist við neyðaraðstæðum. Skipan í ráðið ræður úrslitum um virkni þess, en í því eiga ekki að vera fulltrúar ríkja sem uppvís hafa orðið að stórfelldum mannréttindabrotum." Þá ræddi Davíð um starfsemi Öryggisráðsins og minnti á að Ísland hefði þegar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna lýst vilja sínum til virkrar þátttöku í ráðinu árin 2009 og 2010.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Innlent Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Erlent Hvers vegna að fella ísbirni? Innlent Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Innlent Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Erlent Telja fleiri vera að falla á nýjum bílprófum Innlent Maður margra storma íhugar stöðu sína Innlent Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Erlent Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Innlent Fleiri fréttir Telja fleiri vera að falla á nýjum bílprófum Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Sjá meira